Select Page

Kaupskilmálar Ásborgar

A

Skilafrestur og endurgreiðsla

Heimilt er að skila vöru innan 14 daga frá kaupdegi, að því gefnu að varan sé í upprunalegu ástandi og í óopnuðum upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Framvísa þarf kvittun eða staðfestingu fyrir kaupunum.

Skilaréttur gildir ekki um útsöluvörur, notaðar vörur eða sérpantanir. Kaupandi greiðir sendingarkostnað vegna vara sem skila á. Ef vöru er skilað eftir að útsala er hafin er miðað við útsöluverð vörunnar.

A

Ábyrgðarskilmálar

Ábyrgðartími á búnaði er almennt 2 ár þegar um neytendakaup er að ræða, í samræmi við lög um neytendakaup. Þegar búnaður er keyptur í atvinnuskyni af lögaðila er ábyrgðartími 1 ár. Ábyrgðartími gildir frá dagsetningu reiknings.

Ábyrgð fellur niður ef bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á rekstrarvöru. Ábyrgð fellur niður ef viðgerð eða tilraun til viðgerðar hefur verið gerð af öðrum en [verkstæði/þjónustuaðila Ásborgar], búnaðurinn hefur þolað ranga meðferð, misnotkun, orðið fyrir hnjaski eða átt hefur verið við búnaðinn þannig að skemmd hefur hlotist af. Staðfesta þarf ábyrgð með framvísun á reikningi fyrir kaupunum.

A

Almennt

Ásborg áskilur sér rétt til að hætta við afgreiðslu pöntunar, til dæmis vegna rangra verð- eða magnupplýsinga sem kunna að koma fram í vefverslun. Sama á við ef villur koma upp í reiknireglum vefverslunar. Ásborg áskilur sér einnig rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á einstakar vörur eða vörutegundir fyrirvaralaust.

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003.

A

Verð

Verð í vefverslun er birt með virðisaukaskatti og getur breyst án fyrirvara. Reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti. Allar vörur í vefverslun eru birtar með fyrirvara um villur í verði, magni eða texta.

Netgreiðslur í vefverslun
Ásborg býður viðskiptavinum að greiða fyrir vörukaup með greiðslukortum í vefverslun í gegnum örugga greiðslusíðu [Teya].

Kaupandi velur vöru eða þjónustu á vefsíðu Ásborgar og við greiðslu er hann fluttur yfir á örugga greiðslusíðu þar sem kortaupplýsingar eru skráðar og greiðsla fer fram. Þegar leitað hefur verið eftir heimild fyrir færslu berst staðfesting til viðskiptavinar og söluaðila. Ásborg tekur hvorki við né geymir kortanúmer viðskiptavina.

A

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði og allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp eru trúnaðarmál og verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum, nema þegar það er nauðsynlegt vegna afgreiðslu pöntunar eða samkvæmt lögum.

Innskráning með Facebook eða Google (ef boðið er upp á slíka innskráningu)
Með því að skrá þig inn á vefsíðu Ásborgar í gegnum Facebook eða Google samþykkir þú að Ásborg fái aðgang að þeim upplýsingum sem eru aðgengilegar á reikningi þínum, svo sem nafni og netfangi. Ásborg notar þessar upplýsingar til að stofna og halda utan um aðgang þinn á asborg.is og deilir þeim ekki með öðrum í öðrum tilgangi.

A

Rekstraraðili

Ásborg er í eigu og rekin af Signu ehf., kt. 490910-0930, Bæjarflöt 19, 112 Reykjavík. Fyrirspurnir má senda á signa@signa.is.

Heimilisfang

Bæjarflöt 19-o

112 Reykjavík

Iceland

Tölvupóstur

asborg(@)asborg.is

}

Opnunartími

Mánudag. - Fimmtud.

kl. 08:00 - 17:00

Föstudaga

kl. 08:00 - 16:15

Upplýsingar

VSK nr: 106196 

Kt: 490910-0930

0
Tæma körfu