Skilmálar Ásborg

Almennt

Ásborg áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.  
 
Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Ásborg ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Ásborg ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.  
 
Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Vinsamlegast athugið að öll verð á vefsíðu eru birt með fyrirvara um villur og breytingar. Við sendum allar vörur með Íslandspósti í næsta pósthús. Ekki er greitt sendingargjald fyrir pöntun sem er 10.000 kr. eða hærri. Þetta á ekki við um sérpantanir og tilboðsvöru.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 15 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
 
 
Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.